Færslur: 2012 Febrúar
11.02.2012 23:09
ulsræf llitit
Horfði á breskan morðþátt í gær, kippti mér að venju ekkert upp við dreperíið. Samt var kona stunginn í gegn með sverði, maður skotinn með ör í hjartað og gömul krúttleg kona fékk hattprjón inn um eyrað. Það var ekki fyrr en eldabuska sneri fallega gráa kanínu úr hálslið sem ég kipptist við.
Svona er ég innrætt.
Svona er ég innrætt.
Skrifað af Hrönn
06.02.2012 00:16
Stafrófsjoð vs. lotukerfisjoð
Ljóskumóment þessa árs - so far amk.
Kall að sýna mér gamlar myndir af sjómönnum úr Eyjum:
Kall: "Og þetta er hann bleble blason og hér dörpi senson osfrv. Já, og hér er blasteinn, hann setti nú joð á allt.
Ég: "Ji, en fyndið!, Sagði hann þá svona kannski: Nú er mjatartími - fáum okkur bjauð"

02.02.2012 21:53
steiktur
Sonur sat og gretti sig ógurlega.
Dóttir:"Hvað ertu að gera?"
Sonur: "Ég er að þykjast vera laukur"
Og hvernig skyldi drengnum hafa dottið í hug að þykjast vera laukur?
Jú - vegna þess að mamma hans, sem var að panta handa honum pylsu um daginn, kallaði hann óvart Lauk í staðinn fyrir Jökul. "Viltu remulaði og steiktan? Ha? Laukur?"

- 1